|
FORMÁLI Handbók Íþróttasambands fatlaðra. Hér er að finna upplýsingar um stjórn Íþróttasambands fatlaðra og aðildarfélaga þess, auk nefnda og ráða sem starfa á vegum ÍF. Hér eru einnig lög og reglugerðir auk leikreglna í þeim íþróttagreinum sem keppt er í á Íslandsmótum ÍF. Sýnishorn af metaskýrslum, eyðublöð vegna félagaskipta og fleira sem getur nýst í slíkri handbók. Handbókin verður í rafrænu formi á heimasíðu ÍF. Upplýsingar verða uppfærðar reglulega í samræmi við breytingar á einstaka lið. Gildistími hvers kafla miðar við nýjustu uppfærslu. Ef ábendingar eru um atriði sem þarf að uppfæra vinsamlega hafið samband við skrifstofu Íþróttasambands fatlaðra í síma 514 4080 eða með tölvupósti til if@isisport.is Með bestu kveðju, f.h. stjórnar Íþróttasambands fatlaðra, Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri fræðslu-og útbreiðslusviðs ÍF |